Ættartala Adams til Jakobs (Ísraels):

Ættartala Adams til Jakobs (Ísraels)

aettartala1.Mós 5:24 Enok gekk með Guði og hvarf af því að Guð nam hann á burt!

Það segir frá í 1. Mos 6:1-4 að synir Guðs sáu dætur mannanna voru fríðar og tóku sér konur meðal þeirra , allar sem þeim geðjust.

Á þeim tíma voru risarnir á jörðinni og einnig síðar, er synir Guðs höfðu samfarir við dætur mannanna og fæddu þeim sonu. Það eru kapparnir , sm í fyrndinni voru víðfrægir.

Nói var 10. Ættliður frá Adam.

Nói var réttlátur og vandaður á sinni öld. Nói gekk með Guði! og Jörðinn var spillt orðinn.

1.Mós 11:10 segir að Sem gat Arpaksad tveimur árum eftir flóðið sem er misræmi við aldur Metusala við dauða hans en þar á ég en eftir að finna skýrirngu, þar sem aðeins Nói, Sem, Kam og Jafet og konur þeirra fóru í örkina, eða alls 8 manns.

Ég hef gert mér í hugalund út frá biblíulegum forsendum að jörðinn sem var fullkominn skopun Guðs hafi verið fyrir flóð eitthvað á þessa leið sjá mynd:

jordin fyrir flod

Mós 7:11 Á sexhundraðasta aldursári Nóa, í öðrum mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á þeim degi opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og flóðgáttir himinsins lukust upp.

1.Mós 7:12 Og steypiregn dundi yfir jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur.

1.Mós 6:13 Þá mælti Guð við Nóa: "Endir alls holds er kominn fyrir minni augsýn, því að jörðin er full af glæpaverkum þeirra. Sjá, ég vil afmá þá af jörðinni.

Guð gaf Nóa fyrirmæli um hvernig örkin ætti að vera:

Gjör þú þér örk af góferviði. Smáhýsi skalt þú gjöra í örkinni og bræða hana biki utan og innan.

300 alnir að lengd eða u.þ.b. 150 metrar,

50 alnir að breidd eða u.þ.b. 25 metrar

30 alnir á hæð eða u.þ.b. 15 metrar

orkinn

 

 

 

 

  

Nói er sexhundruðára þegar flóðið kemur yfir jörðina og 17 Ijjar eða árið 1556 eftir sköpun Adams kom flóð yfir heiminn fljóðið.

Þá opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og fljóðgáttir himinssins lukust upp. og steypiregn dundi yfir jörðina fjörtíu daga og fjörtíu nætur.

Fimtán álna hátt óx vatnið svo að fjöllin fóru á kaf. Það dó allt hold sem hreyfðist á jörðinni. Allt sem hafði lífsanda í nösum sínum.

27 Ijjar árið 1557 eftir sköpun Adams gekk Nói út úr örkinni og með honum synir hans þrír og konur þeirra samtals 8. Manneskjur.

þannig var Nói og fjölskylda hans í eitt ár og 10 daga í örkinni.

Allir aðrir dóu og líka afkomendur sona Guðs og mannanna dætra sem sýnir okkur að þeir voru fallnir frá Guði eins og Satan.

Guð gerði við mannin sáttmála:

Aldrei framar skal allt hold tortímast í vatnsflóði, og aldrei framar mun flóð koma og eyða jörðinni. Og hann setti boga sinn í skýinn sem merki þess sáttmála milli allra lifandi sálna.

Boginn skal standa í skýunum, og ég mun horfa á hann til þess að minnast hins eilífa sáttmála.

regnbogi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það vekur einnig athygli mína að frá Nóa flóði til fæðingu Abrahans eru einungis 388 ár og þegar Abraham er 75 ára fer hann frá Harran og nokkrum árum seinna u.þ.b. 470 árum eftir flóð er spillinginn orðinn svo mikkil að Guð eyðir Sódómu og Gómorru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hæer er hlgt að skoða örkina sjálfa steinrunna og hvar hún er niðurkomin og allt um hvernig hún fannst og rannsökuð :

https://youtu.be/M7RUWxK4EW4

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 22.5.2016 kl. 13:56

2 identicon

Þetta er ævintýri strákar.. þið eruð of gamlir til að trúa svona sögum :)

DoctorE (IP-tala skráð) 22.5.2016 kl. 16:32

3 Smámynd: Kristinn Ingi Jónsson

Prédikarann áhugavert ég mun skoða þetta betur en eitt er víst að hver einasta orð skrifað í Biblíunni er heilagur sannleikur og fjallar í raun um áætlun Guðs um að bjarga okkur heim aftur í fyrirheitna landið.

Guð blessi þig og varðveiti

Kristinn Ingi Jónsson, 22.5.2016 kl. 21:39

4 Smámynd: Kristinn Ingi Jónsson

Kæri DoktorE Þetta er að sönnu æfintýri! Þetta er svo stórt æfintýri og stórkostlegt undur að Guð elski mig svo mikið að hann sendi Jesú Krist til þess að deyja fyrir syndir mínar! Það er stæðsta æfintýri sem nokkur maður getur hugsað sér að vera elskaður af Guði. 

En því miður er það svo að það sjá ekki alið þetta stórkostlega æfintýri sem felst í lífinu með Jesú og það er miður! 

Mattheus 13:14 Á þeim rætist spádómur Jesaja: Með eyrum munuð þér heyra og alls ekki skilja, og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.

Guð blessi þig og varðveiti

Kristinn Ingi Jónsson, 22.5.2016 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband